Ruslpóstur hækkar sorphirðugjald um 30%
Sorphirðu- og sorpeyðingargjald í Reykjanesbæ mun hækka á næsta ári um 30% . Það þýðir að hvert heimili þarf að greiða 2 þúsund krónum meira á mánuði í sorphirðugjald, sem hækkar úr 18 þúsund krónum í 24 þúsund krónur á ársgrundvelli. Þessi kostnaður leggst beint á heimilin. Ástæðuna má rekja til gríðarlegrar aukningar á óumbeðnum pósti, svokölluðum ruslpósti.
Að sögn Guðjóns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra SSS og Kölku hefur þessi gríðarlega aukning ruslpósts haft í för með sér mikla kostnaðaraukningu við bæði sorphirðu og sorpeyðingu. Nú sé svo komið að koma þurfi upp stærri blaðagámum og fjölga losunum. Þá verði reynt að ná fram meiri hagkvæmni í flutningi á sorpi.
Guðjón segir þetta mikla magn ruslpósts vera orðið viðvarandi vandamál á suðvesturhorni landsins og sveitarfélögin þurfi að bregðast við því.
Varðandi rekstur Kölku segir Guðjón að menn sjái fram á erfiðari rekstur hennar í framtíðinni eftir brotthvarf varnarliðsins og verið sé að bregðast við því líka. Sorpeyðing frá varnarsvæðinu vó nokkuð þungt í rekstri Kölku, eða um 20% að sögn Guðjóns. „Fyrstu árin í rekstri Kölku voru erfið og við erum að nokkru leiti að súpa seyðið af því í dag, auk þess sem við hækkuðum gjaldaskrá seint á meðan við vorum að sjá hvernig framvindan yrði,“ segir Guðjón.
Sú mikla uppbygging sem verið hefur í Reykjanesbæ hefur einnig haft sín áhrif því henni fylgir mikið magn af tilfallandi efnum og öðru sem fylgir því að flytja í nýtt hús, segir Guðjón.