Ruslið á að fara í tunnuna
Skólahópur elstu barnanna í leikskólanum Garðaseli í Reykjanesbæ tók til hendinni nú í vikunni. Af tilefni degi íslenskrar náttúru fór hópurinn í vettvangsferð og gerði fínt í kringum sig.
Umræður barnanna snerust um það hvernig þau vilja að umhverfi okkar líti út og öll börnin voru sammála um það hvert ruslið átti að fara, í ruslatunnurnar en ekki á götuna eða í grasið okkar.