Runólfur Ágústsson umboðsmaður skuldara
Runólfur Ágústsson, lögfræðingur og fyrsti framkvæmdastjóri Keilis að Ásbrú, hefur verið skipaður í nýtt embætti umboðsmanns skuldara sem tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi.
Níu sóttu um embættið. Niðurstaða hæfnismats var sú að Runólfur væri hæfastur í starfið. Embætti umboðsmanns skuldara er ríkisstofnun sem hefur það hlutverk að gæta hagsmuna og réttinda skuldara eins og nánar er kveðið á um í lögum. Embættinu er einnig ætlað að annast fjármálaráðgjöf við einstaklinga sem til þessa hefur verið sinnt af Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna en starfsemi hennar rennur inn í embætti umboðsmanns þegar það tekur til starfa 1. ágúst.
Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins.