Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rúnar V. Arnarson hafnarstjóri Sandgerðishafnar
Þriðjudagur 23. október 2018 kl. 08:45

Rúnar V. Arnarson hafnarstjóri Sandgerðishafnar

Hafnarráð sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis hefur samþykkt samhljóða að ráða Rúnar V. Arnarson sem hafnarstjóra Sandgerðishafnar.
 
Alls sóttu 14 umsækjendur um stöðuna, en af þeim drógu tveir umsóknir sínar til baka.
 
Haraldur Helgason formaður hafnarráðs og Magnús Stefánsson bæjarstjóri fóru yfir umsækjendur og úrvinnslu umsókna um stöðu hafnarstjóra Sandgerðishafnar á fundinum og var lagt til við bæjarstjórn að staðfesta ráðninguna.
 
Sæmundur Sæmundsson gerði grein fyrir sinni afstöðu á fundinum, þar sem hann leggur áherslu á mikilvægi starfsreynslu núverandi verkefnisstjóra hafnarinnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024