Rúnar Júlíusson sextugur í dag - býður til tónlistarveislu
Rúnar Júlíusson hefur átt viðburðaríka ævi og er ekkert lát þar á. Rúnar er 60 ára gamall í dag, 13. apríl, og bíður til tónlistarveislu í Stapa þar sem hann spilar meðal annars lög af splunkunýrri plötu sinni „Blæbrigði lífsins.“
Rúnar fæddist í heimahúsi 13. apríl 1945 á Sólvallargötu 6. Hann var í Myllubakkaskóla og lét fljótlega af sér kveða í tónlist þegar hann spilaði á hátíðum í skólanum. Þegar Rúnar var aðeins 18 ára gamall verða Hljómar til og ná vinsældum nánast samstundis hjá landsmönnum. Samstíga tónlist hafði Rúnar mikinn áhuga á knattspyrnu og byrjaði að æfa með Keflavík aðeins 9 ára gamall. Líkt og með tónlistina varð Rúnar snöggur að skipa sig í sessi meðal þeirra bestu. Árið 1959 verður hann Íslandsmeistari í 4. flokki með Keflavík og fimm árum seinna Íslandsmeistari með meistaraflokk félagsins, þá aðeins 19 ára gamall. Á táningsaldri var hann því söngvari í frægustu hljómsveit Íslands og Íslandsmeistari í knattspyrnu. Það má segja að hann hafi komist í sviðsljósið á ljóshraða, 4-5000 manns fylltu íþróttavöll Keflavíkur á þessum tíma og annar eins fjöldi mætti svo á böll með Hljómum. Hann segist þó hafa þurft að taka erfiða ákvörðun þegar hann ákvað að hætta ungur knattspyrnuiðkun þar sem tónlistin var tímafrek og Hljómar höfðu skotist upp á stjörnuhimininn leiftursnöggt og voru uppbókaðir langt fram í tímann.Víkurfréttir kíktu í heimsókn í Geimstein, hljóðver Rúnars í húsi hans á Skólaveginum, sem hann byggði sjálfur. Rúnar var nýkominn frá Akureyri þar sem hann var að spila með sonum sínum, þeim Baldri og Júlíusi. Geimsteinn er elsta tónlistarútgáfa landsins og hefur verið upptökuheimili Rúnars og fjölda tónlistarmanna síðan 1976. Þegar okkur bar að garði voru ungir tónlistarmenn að vinna í hljóðverinu. Við settumst niður við píanóið og ræddum það sem er framundan hjá kappanum. Efst í huga hans núna er diskurinn sem hann er í þann mund að gefa út og heitir Blæbrigði lífsins, „Þessi diskur er tileinkaður foreldrum mínum og má segja að hann sé bland af trúarlegri tónlist, gamalli og nýrri danstónlist og kemur svo reggea tónlist mikið við sögu þar sem Hjálmar spila undir.“ Það er við hæfi að Hjálmar, þar sem kjarninn er frá Suðurnesjum, spili undir hjá Rúnari því það má segja að hann hafi greitt leið þeirra að vinsældum með því að opna fyrir þeim dyrnar að upptökuheimili sínu á Skólaveginum og hefur Rúnar miklar mætur á þeim Hjálmamönnum. Rúnar semur flesta textana og lögin sjálfur á disknum og segist hann oft vera með hugmyndir að hátt í 200 lögum og textum í einu: „Mér finnst erfiðara að malla saman textana heldur en lögin. Það er samt misjafnt, stundum eru textarnir að vefjast fyrir mér en textar eiga það þó til að svífa nánast í heilu lagi í kollinn á mér.“ Rúnar hefur verið að fara ótroðnar slóðir þar sem Hljómar hafa verið að spila með karlakórnum Heimi. Þá er nýi diskur hans skemmtileg samsetning af undirspili Hjálma með reggea-ívafi og söng Rúnars. Þarna mætast bjartasta von Íslands og einn farsælasti söngvari landsins í skemmtilegu samspili, „Það skemmtilegasta við tónlist er að hún er síbreytileg og maður verður að vera með opin augun fyrir nýjum hlutum og óhræddur við að kýla á nýungar.“
Í tilefni af afmælisveislu sinni bíður Rúnar til tónlistarveislu á afmælisdegi sínum í Stapa í kvöld, húsið opnar klukkan 19 og tónlistaveislan hefst 20: „Það verður lítið um ræðuhöld heldur er það tónlistin sem ræður ríkjum og verða gestir leystir út með smá glaðningi, en það verður diskur með broti úr tónlistarsögu minni, sem er við hæfi því yfirskriftin á tónleikunum er Gott er að gefa“. Margir kunnir tónlistamenn munu stíga á svið. Rúnar sjálfur mun syngja lög af nýja disknum sínum við undirspil Hjálma og svo mun hann taka lagið með Hljómum. Þá munu Gylfi Ægisson, Bjartmar Guðlaugsson, KK, Hjálmar og fleiri syngja fyrir gesti og segir Rúnar að fólk megi búast við óvæntum uppákomum. Veislustjóri í afmælinu verður leikarinn góðkunni Hjálmar Hjálmarsson.
Rúnar lítur björtum augum fram á veginn og segir það vera jafnvel skemmtilegra að vinna í tónlist í dag þar sem tækni við tónlistargerð hefur fleytt fram og fylgir hann henni jafnóðum eftir. „Ég ætla mér að halda áfram að vinna við tónlist og gefa út diska, ég lifi í og fyrir tónlist,“ sagði þess hlédrægi tónlistarmaður áður en haldið var í upptökuverið sem hafði verið upptekið af ungum tónlistarmönnum. Þar var Rúnar kominn á heimavöll og leyfði hann blaðamanni að heyra tvö lög af nýja disknum og það var strax ljóst að kóngurinn hafði enn einu sinni hitt naglann á höfuðið þar sem hljómurinn og samspil Rúnars og Hjálma gripu mann á lofti og er nokkuð ljóst að þarna er á ferðinni mikið tónlistarverk.
Rúnar er höfðingi heim að sækja og er ekki laust við að maður komist í annan gír að spjalla við hann á upptökuheimili hans á Skólaveginum. Það er fastur siður Rúnars að gefa nýjum gestum upptökuheimilisins geisladiska í kveðjuskyni. Leysti hann blaðamann út með veglegum tvöföldum diski með sýnishornum af þeim fjölmörgu lögum sem hann hefur sungið yfir ævina.
Vf-Myndir/Bjarni - efsta: Rúnar í spjalli við blaðamann. miðja: Rúnar við veglegt gítarasafn sitt í Geimstein. neðsta: Umslagið af nýja disk Rúnars.