HSS
HSS

Fréttir

Rúnar gaf geisladiska í happdrætti MND félagsins
Mánudagur 10. janúar 2005 kl. 11:57

Rúnar gaf geisladiska í happdrætti MND félagsins

Upptökuheimilið Geimsteinn sem Rúnar Júlíusson stýrir gaf 50 tvöfalda geisladiska í happdrætti MND félagsins. Guðjón Sigurðsson tók við diskunum fyrir hönd MND félagsins en hann greindist með MND sjúkdóminn í mars á síðasta ári.
Að sögn Guðjóns skipta framlög í happdrættið miklu máli. „Stuðningurinn sem við finnum þegar við tökum á móti framlögum sem þessum er mikilvægur og skiptir starf MND félagsins miklu máli. Allur afrakstur happdrættisins mun renna í framkvæmdasjóð félagsins og við höfum óskað eftir óskalistum frá ýmsum aðilum sem koma að umönnun MND sjúklinga á Íslandi. Það vantar nokkra vinninga í viðbót og ég vil hvetja fyrirtæki til að hafa samband og láta sitt af mörkum liggja – hvert framlag skiptir miklu máli,“ sagði Guðjón í samtali við Víkurfréttir.
Á Íslandi greinast 3 til 5 einstaklingar með MND (Hreyfitaugahrörnun) á hverju ári. Lífslíkur þeirra sem greinast eru frá 1 til 5 árum og er sjúkdómurinn ólæknandi.
Frá því Guðjón greindist með sjúkdóminn hefur hann unnið mikið starf með MND félaginu og meðal annars staðið fyrir rausnarlegum gjöfum MND félagsins til taugadeildar Landspítala Háskólasjúkrahúss, líknardeildar Landspítalans og Landakots. Vinningshlutfallið í happdrættinu verður mjög hátt því seldir verða 2000 miðar og verða 2000 vinningar boði.

Sala á happadrættismiðum MND félagsins hefst fljótlega. Þeir sem vilja gefa vinninga í happadrættið er bent á að hafa samband við Guðjón í síma 617-6828 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Þeir sem vilja fræðast frekar um MND sjúkdóminn er bent á heimasíðu MND félagsins á slóðinni www.mnd.is.

Myndin: Rúnar Júlíusson afhendir Guðjóni Sigurðssyni 50 geisladiska í happdrætti MND félagsins. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn