Rúmlega 800 manns hafa nú þegar kosið
Nú þegar hafa 759 einstaklingar kosið utan kjörfundar hjá Sýslumanninum í Keflavík fyrir komandi Alþingiskosningar, en heildartalan í fyrra var 1.131 samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum við fyrirspurn Víkurfrétta. Í Grindavík hafa alls 154 kosið en heildartala utankjörstöðvaatkvæða þar í fyrra var 211 atkvæði. Um er að ræða kjósendur af Suðurnesjum, en Alþingiskosningarnar munu fara fram laugardaginn 28. október næstkomandi.
Opið verður til kl. 19 í kvöld og annað kvöld hjá sýslumannsembættinu að Vatnsnesvegi 33 í Keflavík.