Rúmlega 120 ökumenn stöðvaðir
Lögreglan á Suðurnesjum hélt uppi umferðareftirliti við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrrakvöld til að athuga ástand ökumanna og farartækja. Rúmlega 120 ökumenn voru stöðvaðir og beðnir um að blása í áfengismæli sem þeir tóku ljúflega. Er skemmst frá því að segja að enginn var undir áhrifum og allt í besta lagi.