Rúmir 20 milljarðar króna í vetnisframleiðslu í Auðlindagarði HS Orku
HS Orka og Hydrogen Ventures Limited (H2V) hafa náð samkomulagi um orkuverð og aðra skilmála vegna fyrirhugaðrar vetnisframleiðslu á Íslandi sem verður nýtt við framleiðslu metanóls í Auðlindagarði HS Orku. Fyrirtækin skrifuðu undir viljayfirlýsingu í lok síðasta árs og er samkomulagið staðfesting á áframhaldandi vinnu fyrirtækjanna að því að koma framleiðslunni á fót. Áætlað er að framleiðsla geti hafist um áramótin 2025/2026. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HS Orku.
Orkuþörf H2V mun nema um 60 megavöttum úr jarðhita við framleiðslu á grænu metanóli auk þess sem meirihluti þess koldíoxíðs sem losnar frá vinnslusvæðum HS Orku verður nýtt í ferlinu. Áætluð fjárfesting er um 150 milljónir evra, sem samsvarar rúmum 20 milljörðum íslenskra króna.
Litið er til græns metanóls sem umhverfisvæns framtíðarorkugjafa, sérstaklega í sjóflutningum og í sjávarútvegi. Ef afrakstur framleiðslunnar yrði nýttur innanlands myndi verkefnið því færa Ísland mun nær markmiði sínu um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.
Meira en 80% af orkunotkun Íslands byggir nú þegar á endurnýjanlegum orkugjöfum, fyrst og fremst jarðhita og vatnsafli. Markviss uppbygging innviða fyrir framleiðslu græns vetnis og metanóls getur, að mati forsvarsmanna H2V, gert Ísland að leiðandi þjóð á sviði endurnýjanlegrar og hreinnar orku með að skipta út jarðefnaeldsneyti í samgöngum fyrir endurnýjanlega orkugjafa.
Horacio Carvalho, framkvæmdastjóri H2V:
„Síðan við kynntum verkefnið í lok síðasta árs hefur mikil vinna farið fram við að gera það að veruleika, auk þess sem eftirspurn eftir metanóli sem eldsneytis hefur aukist. Samstarf okkar og HS Orku hefur verið mjög gott og við erum spennt fyrir því að starfa áfram með þeim. Ísland hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr kolefnislosun sinni og við teljum að nýting metanóls í sjávarútvegi geti gegnt lykilhlutverki í því.“
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku:
„Samstarfið við H2V hefur verið mjög gott og þær athuganir sem hafa verið gerðar staðfesta að þær auðlindir sem bjóðast í Auðlindagarðinum passa einstaklega vel við svona framleiðslu. Auk endurnýjanlegrar orku getum við séð H2V fyrir vatni og ekki síst koldíoxíði sem er nauðsynlegt við framleiðslu Metanóls.