Rúðubrot á róluvelli
Í dag var um rúðubrot í Heiðarbólsróló en þar voru tvær rúður brotnar í nótt sem leið og tvær rúður í fyrrinótt. Ef fólk hefur orðið vart við grunsamlegar mannaferðir er það vinsamlegast beðið um að hafa samband við lögregluna í Keflavík. Talsvert hefur verið um skemmdarverk á húsnæði róluvallarins. Annars var dagvaktin róleg hjá lögreglunni í Keflavík.
Myndin: Þessi róluvöllur verður oft fyrir aðkasti skemmdarvarga.