Ruddust inn og misþyrmdu húsráðanda

Lögreglan á Suðurnesjum handtók snemma í gærmorgun tvo karlmenn á þrítugsaldri eftir að hópur manna hafði ruðst inn hjá karlmanni á fertugsaldri, með því að brjótast í gegnum framhurð húsnæðisins þar sem hann býr. Leikur grunur á að þeir sem brutust þar inn hafi misþyrmt húsráðandanum, meðal annars barið hann með spýtu sem fannst á vettvangi. 
Lögreglan var kvödd á staðinn rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Skömmu síðar  voru ofangreindir menn handteknir sem grunaðir forsprakkar í málinu,  annar á skemmtistað en hinn þar sem hann var á gangi í Reykjanesbæ. Þeir voru færðir á lögreglustöð og yfirheyrðir, en síðan látnir lausir í gærkvöld. Lögreglan rannsakar málið.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				