Rúða brotnaði í flugstjórnarklefa í flugtaki
„Styðstu flugferð minni lokið, frá flugstöð út á braut og að flugstöð aftur og send heim,“ segir farþegi á leið til Oslóar í Noregi frá Keflavíkurflugvelli í fésbókarfærslu. Rúða brotnaði í flugstjórnarklefa þotu Norwegian þegar vélin var að hefja flugtak frá Keflavíkurflugvelli í gær. Hætt var við flugtakið, vélinni var snúið aftur að flugstöðinni og farþegarnir sendir heim.
„Það var nú gott að rúðan brotnaði ekki eftir að í loftið var komið,“ bætir farþeginn við en önnur vél frá Norwegian kom til landsins í dag og sótti farþegana.