Rottweiler-hundur beit 12 ára stúlku í Innri-Njarðvík
Sauma þurfti sextán spor í handlegg tólf ára stúlku eftir að Rottweiler-hundur réðst á hana í Innri-Njarðvík í fyrrakvöld. Faðir stúlkunnar, Ingi Þór Þórisson, segir hana felmtri slegna eftir árásina en frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Stúlkan var úti að ganga með tveimur vinkonum sínum í nýja hverfinu í Innri-Njarðvík eftir kvöldmat í fyrrakvöld.
„Þær mættu konu með hund í bandi,“ lýsir Ingi Þór atvikinu. „Hún virtist ekki ráða við hann en sagði við stelpurnar að þær skyldu vera alveg rólegar, þetta væri allt í lagi. Stelpurnar litu engu að síður við til að fullvissa sig um að þeim stafaði engin hætta af hundinum, en þá skipti engum togum að hann var búinn að rífa sig lausan og kom æðandi til þeirra.“
Að sögn Inga Þórs stökk hundurinn fyrst á vinkonu dóttur hans en náði ekki að bíta hana. Því næst réðst hann á dóttur hans, glefsaði fyrst í fótinn á henni og beit hana svo í handlegginn. Það bjargaði því að ekki fór verr að maður í raðhúsalengju í næsta nágrenni heyrði ópin í stúlkunum og þaut út um leið og hann kallaði til stúlknanna. Við það kom hik á hundinn og gátu þær notað tækifærið og þotið inn í húsið, ásamt manninum. Hann rétt náði að skella hurðinni áður en hundurinn kom þjótandi og henti sér á hana. Eigandi hans var þá á bak og burt.
Stúlkan sem fyrir árásinni varð var tafarlaust flutt undir læknishendur, þar sem tveir læknar þurftu að sauma sextán spor á og við olnboga hennar til að loka bitsárunum. Hún er enn undir eftirliti læknis.
Lögreglunni var gert viðvart um árás hundsins og hafði hún fljótlega uppi á honum og tók hann í sína vörslu. Honum hefur nú verið lógað.
„Dóttir mín slasaðist ekki bara á líkama heldur einnig á sálinni,“ segir Ingi Þór. „Hún svaf eiginlega ekkert nóttina eftir árásina og er mjög skelkuð ennþá.“