Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rótgróin Safnahelgi á Suðurnesjum
Í Grindavík verður hægt að skoða muni sem tengast ströndum á svæðinu.
Miðvikudagur 6. mars 2019 kl. 10:23

Rótgróin Safnahelgi á Suðurnesjum

Saga skipstranda í Grindavík, Stærsti slökkvibíll í heimi, Skessan, Bergrisinn, ponyhestar, viský og göngustafir

Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin í ellefta sinn um helgina 9.-10. mars. Þar opna söfn í Grindavík, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum dyr safna sinna fyrir gestum og gangandi. Í fyrra sótti metfjöldi söfnin á svæðinu og var vel látið af fjölbreyttum sýningum og viðburðum.
 
Á meðal þess sem boðið er upp á í ár er glæsilegur nýr gagnvirkur plötuspilari í Rokksafni Íslands, íbúar í Suðurnesjabæ og Vogum opna söfnin sín, stærsti slökkvibíll í heimi finnst í safnageymslum Reykjanesbæjar þar sem slökkvisafn Íslands er einnig til húsa og í Grindavík verður hægt að skoða muni sem tengast ströndum á svæðinu. Auk þess verður nóg um að vera fyrir börnin, m.a. upplestur úr Veröld vættanna bæði í Grindavík og Reykjanesbæ, ævintýraveröld í Þekkingarsetrinu og föndursmiðja og ratleikur í Duus-húsum. Tilvalið er fyrir fjölskylduna alla að taka rúnt um Suðurnesin og skoða menningu og mannlíf í bakgarði höfuðborgarinnar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024