Fréttir

Rósaselstorg að taka á sig mynd
Fimmtudagur 18. ágúst 2016 kl. 10:35

Rósaselstorg að taka á sig mynd

-Verslanir og veitingastaðir áforma rekstur við flugvöllinn

Gengið hefur verið frá samningum við fjóra aðila um rekstur í verslunar- og þjónustukjarnanum Rósaselstorgi sem áætlað er að rísi rétt við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Á meðal þeirra eru Nettó með matvöruverslun, Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell og Grill 66 með veitingastaði og Olís með eldsneytissölu og þjónustu. Auk fjölbreyttrar þjónustu við erlent og innlent ferðafólk þá er þess vænst að staðsetning kjarnans geti verið gátt að ferðamannastöðum á Reykjanesi og fjölgað þeim erlendu ferðamönnum sem staldra við á svæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kaupfélagi Suðurnesja sem unnið hefur að opnun þjónustukjarnans.



Verkefni sem skapar fjölmörg ný störf

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Samhliða mikilli fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hefur þörf fyrir fjölbreyttari verslun og þjónustu á flugvallarsvæðinu aukist. Einnig kalla væntanleg stóriðjuumsvif í Helguvík og fjölgun starfsfólks á flugvallarsvæðinu á meira framboð þjónustu á þessum stað. Greiðlega hefur gengið að fá rekstraraðila að verkefninu sem leigja munu rými í nýja kjarnanum en dregist hefur að hefja framkvæmdir þar sem enn er verið að hnýta lausa enda í skipulagi svæðisins. Vonir standa þó til að hægt verði að hefja framkvæmdir fyrri part næsta árs og opna kjarnann síðar sama ár. Verkefnið mun skapa fjölmörg ný störf en að jafnaði munu 75-100 manns starfa hjá rekstraraðilum í þjónustukjarnanum. Starfsfólki mun svo fjölga enn frekar þegar síðari áfangar verkefnisins komast í gagnið en um er að ræða alls 20.000 fm lóð við síðasta hringtorgið næst flugstöðinni.

Hönnun rýma að ljúka
„Við hefðum viljað vera komin af stað með framkvæmdirnar, en skipulagsmálin taka sinn tíma og góðir hlutir gerast hægt,“ segir Skúli Skúlason, stjórnarformaður Kaupfélags Suðurnesja. „Við höfum gengið frá formlegu samstarfi við kjölfestuaðila vegna 2000 fm verslunar- og þjónustuhússins, það er matvöruhluta þess, eldsneytissölu og við fimm veitingaaðila í matartorgið. Þessir aðilar munu á næstu vikum ljúka þátttöku í endanlegri hönnun sinna rýma en þar eru nokkrar hugmyndir á teikniborðinu. Ýmsir fleiri aðilar hafa sýnt staðsetningunni áhuga og við munum vinna áfram með sveitarfélaginu Garði að uppbyggingu svæðisins,“ segir Skúli. 

Margar fyrirspurnir um lóðir við flugvöllinn
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, kveðst fagna miklum áhuga fyrirtækja á að hefja starfsemi á þessum stað. „Það er fullur vilji hjá bæjarstjórninni í Garði að uppbygging Rósaselstorgsins gangi sem hraðast. Við erum núna að hnýta nokkra lausa enda varðandi skipulag og vegagerð. Þetta er mjög verðmætt svæði til lengri tíma litið og við hjá Garði, Sandgerði og Reykjanesbæ fáum margar fyrirspurnir vegna lóða í grennd við Keflavíkurflugvöll. Það er mikil þensla í flugstöðinni og allt í kringum hana. Við sjáum að mannaflaþörfin vex stöðugt og að atvinnuleysi á svæðinu er nánast að hverfa. Þá er mikil eftirspurn og sala á íbúðarhúsnæði í öllum sveitarfélögunum.“

Ein þeirra tillagna sem eru á teikniborðinu og sýnir hvernig þjónusta mun raðast niður í verslunar- og þjónustumiðstöðinni.