Rólegur Hvítasunnudagur
Hann var fremur rólegur Hvítasunnudagurinn í dag hjá lögreglunni í Keflavík og Grindavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni gerðist ekkert fréttnæmt á vaktinni í dag enda hafa fáir verið á ferli á þessum stórhátíðisdegi.Tveir voru teknir ölvaðir í nótt á bifreiðum sínum en að öðru leyti var rólegt á vaktinni.