Rólegt í Grindavíkurhöfn

Þeir bátar sem ekki voru bundnir við bryggju vegna sjómannaverkfalls fengu góðan afla, sérstaklega þeir sem veiða í net. Ekki gekk vel hjá þeim sem veiða á línu. Undanfarinn mánuð hefur verið rólegt við höfnina í Grindavík eins og öðrum höfnum landsins sökum sjómannaverkfalls. Sverrir Vilbergsson, hafnarstjóri vonaðist til þess að það myndi breytast á næstunni.