Rólegt hjá lögreglu og sjúkraliði
Mjög rólegt hefur verið í alla nótt hjá lögreglunni í Keflavík og sömu sögu er að segja af sjúkraflutnings- og slökkviliðsmönnum hjá Brunavörnum Suðurnesja.Halldór Jensson varðstjóri hjá lögreglunni sagði ekkert markvert hafa gerst á vaktinni í nótt og Ómar Ingimarsson hjá Brunavörnum Suðurnesja tók í sama streng.