Rólegt hjá lögreglu á Sjómannadaginn

Eigendur tveggja bifreiða voru boðaðir með bifreiðar sínar til skoðunar vegna vanrækslu á þeim gjörningi.
Skráningarnúmer voru tekin af tveimur bifreiðum vegna vanrækslu á greiðslu trygginga.
Næturvaktin var frekar róleg en eitthvað var um umferðarlagabrot eins og gengur og gerist. Má þar nefna þrjár hraðaksturskærur á Reykjanesbraut.