Rólegheitaveður í dag

Norðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum. Vestan 5-10 í kvöld og skúrir eða él. Heldur hvassara um tíma á morgun. Hiti 0 til 5 stig.
Spá gerð: 05.01.2008 06:44. Gildir til: 06.01.2008 18:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Vestlæg átt, víðast 5-10 m/s og él, en léttir til sunnan- og austanlands. Frost 2 til 8 stig, en hiti kringum frostmark við ströndina.
Á þriðjudag:
Norðlæg eða breytileg átt með éljum víða um land. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Stíf norðaustanátt og slydda eða rigning með köflum norðan- og austanlands, en bjartviðri suðvestantil. Hiti nálægt frostmarki.
Á fimmtudag og föstudag:
Útlit fyrir austlæga átt með slyddu eða rigningu á láglendi, en úrkomulítið vestanlands.
Spá gerð: 05.01.2008 08:01. Gildir til: 12.01.2008 12:00.