Fimmtudagur 6. janúar 2000 kl. 13:42
				  
				RÓLEG ÁRAMÓT
				
				
				Mikið var um ölvun um áramótin. Lögreglan fékk tilkynningar um pústra og minniháttar líkamsárásir, rúðubrot og  nokkra smá bruna. Áramótadansleikir í byggðalaginu gengu einnig vel fyrir sig. Lögreglan sagði að áramótin að þessu sinni hafi verið  óvenju róleg miðað við oft áður.