Rok og rigning út vikuna
Það er spáð roki og rigningu út vikuna á suðvesturhorni landsins. Stíf suðaustanátt og rigning með köflum sunnan- og suðvestanlands, en hægari og úrkomulítið annars staðar. Á föstudag: Suðaustan átt, víða 18-23 m/s suðvestanlands, en annars 10-18. Rigning með köflum sunnan- og suðvestanlands, en annars skýjað með köflum. Hiti 5 til 10 stig. Á laugardag: Austlæg átt. 10-15 m/s og rigning sunnan- og austanlands, en annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Dregur heldur úr vindi síðdegis. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag og mánudag: Austlæg átt og rigning af og til sunnan- og austanlands, en annars skýjað með köflum. Kólnar lítið eitt. Á þriðjudag: Vaxandi austanátt með vætu.