Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Rok og rigning í dag
Mánudagur 26. september 2005 kl. 09:17

Rok og rigning í dag

Klukkan 6 var norðaustanátt, víða allhvöss eða hvöss og rigning eða slydda, en hægari vindur austanlands. Hiti 0 til 6 stig, en sums staðar vægt frost norðaustanlands.

Yfirlit:

400 km SSV af Reykjanesi er víðáttumikil 955 mb lægð sem þokast NA.

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:

Búist er við stormi norðvestantil á landinu, suðaustanlands og á hálendinu.
Norðaustanátt, víða allhvöss eða hvöss en stormur (meira en 20 m/s) SA-lands og einnig norðvestantil síðdegis. Rigning eða slydda og hiti 2 til 8 stig. Norðlægari vindur á morgun og lægir talsvert austantil á landinu.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:

Norðaustan 13-18 m/s, en 18-23 á Snæfellsnesi. Dálítil rigning og hiti 2 til 8 stig.

Kortið er tekið af vef Veðurstofunnar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024