Rok og rigning á morgun
Veðurspá fyrir Faxaflóasvæðið næsta sólarhringinn: Suðaustan 10-18 m/s og rigning eða slydda þegar kemur fram á morguninn. Hvessir í nótt. Austan víða 18-25 og rigning á morgun. Hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Suðaustan 13-18 m/s og dálítil rigning eða slydda þegar kemur fram á morguninn. Hvessir í nótt. Austan víða 18-23 og rigning á morgun. Hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Austanátt, víða 20-28 m/s með rigningu eða slyddu, en jafnvel mikilli úrkomu SA-lands. Lægir talsvert S-lands um kvöldið og dregur úr úrkomu. Hiti 2 til 8 stig, en minnkandi frost fyrir norðan.
Á laugardag:
Minnkandi austan og síðar norðaustanátt og léttir til um landið V-vert, en skúrir eða él A-til á landinu. Hiti 1 til 8 stig.
Á sunnudag:
Norðaustan og austan 5-13 m/s við S- og SA-ströndina, en annars fremur hægur vindur. Víða bjartviðri. Hægt vaxandi suðaustanátt og þykknar upp SV-lands seinnipartinn. Hiti 0 til 7 stig, en 0 til 6 stiga frost fyrir norðan.
Á mánudag:
Stíf suðaustlæg átt með rigningu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnandi veður.
Á þriðjudag:
Suðlæga átt með vætu S- og V-lands. Hiti 2 til 8 stig.
Á miðvikudag:
Vestlæg átt og stöku skúrir eða slydduél. Hiti breytist lítið.