Rofaði til eitt augnablik
Talsverður snjór er núna í Reykjanesbæ og ennþá snjóar. Núna rétt fyrir hádegið fór sólin að skína og víða mátti sjá „jólakorta-svip“ á bænum. Meðfylgjandi mynd var tekin við Hringbraut í Keflavík núna rétt áðan þegar snjóruðningstæki fór þar um gangstéttina. Aftur hefur þó þykknað upp og falla snjókorn þegar þetta er skrifað um kl. 12:30
Ljósmyndarar Víkurfrétta eru núna úti í snjónum (og leiðist ekki) og má búast við fleiri myndum úr snjónum síðar í dag.
VF-mynd: Hilmar Bragi