Bygg
Bygg

Fréttir

„Roðlausa ýsan selst best“
Föstudagur 6. febrúar 2004 kl. 12:43

„Roðlausa ýsan selst best“

„Viltu ekki fá þér bita – þetta er úrvals harðfiskur,“ segir Kristján F. Kristinsson harðfisksölumaður þegar viðskiptavinir í Njarðvíkurútibúi Sparisjóðsins í Keflavík ganga þar inn. Kristján er 68 ára gamall og hættur að vinna eins og hann segir. „Ég er að selja harðfisk frá Þingeyri, Sandgerði og Grindavík,“ sagði hann í samtali við Víkurfréttir, en roðlausa ýsan er vinsælust. Kristján hefur búið lengi á Suðurnesjum. „Ég er nú búinn að eiga heima í Njarðvík í 30 ár og eiga sömu konuna í 42,“ sagði þessi hressi harðfisksölumaður, en þau hjónin selja einnig kleinur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn