Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Rödd unga fólksins býður fram í Grindavík
Föstudagur 27. apríl 2018 kl. 09:34

Rödd unga fólksins býður fram í Grindavík

Rödd unga fólksins er nýr listi í Grindavík sem býður fram fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, þar verður vettvangur fyrir ungt fólk til þess að taka sín fyrstu skref í bæjarmálum, óháð stjórnmálaskoðunum og einnig tækifæri til þess að læra inn á bæjarmálin án þess að svara fyrir sögu rótgróinna flokka. Þetta segir í tilkynningu frá framboðinu. Þar kemur einnig fram að þau sjái þetta sem hreyfingu til þess að málefni ungs fólks og þeirra sýn komist á borðið.

„Fyrir jól hittumst við nokkur úr sama árgangnum og ræddum bæjarmál. Eftir miklar samræður komumst við að því að við höfðum sterkar skoðanir á ákvarðanartöku og málefnum sem snéru að okkar bæjarfélagi. Vorum öll sammála um að það væri gott að geta haft áhrif og tekið þátt en enginn af okkur var tilbúinn til þess að setjast á lista hjá núverandi stjórnmálaflokkum. Svo við ákváðum að stofna flokk til sveitastjórnarkosninga 2018 og fengum fullt af flottu fólki með okkur sem gerðu flokkinn að veruleika“, segir Inga Fanney Rúnarsdóttir, formaður flokksins. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Helga Dís Jakobsdóttir skipar efsta sæti listans, Helga Dís er 27 ára og hefur lokið viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, hún er mastersnemi í HÍ í þjónustustjórnun. Helga Dís vinnur hjá Höllu þar sem hún sér m.a. um bókhald. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík, við ákváðum að stofna flokk fyrir ungt fólk til þess að taka sín fyrstu skref í pólitík, óháð rótgrónum flokkum“, segir Helga Dís. Helga segir einnig að málefni ungs fólks og raddir þeirra skipti miklu máli þar sem það sé oft að gera upp við sig hvort það vilji setjast að í Grindavík eða ekki. „Ég legg mikla áherslu á að Grindavík verði þjónustumiðað bæjarfélag og að öll starfsemi og umgjörð bæjarins verði þjónustumiðuð.“

Helga Dís Jakobsdóttir.

Sævar Þór Birgisson, hagfræðinemi skipar annað sæti listans. Hann er 26 ára nemi við hagfræðideild Háskóla Íslands og starfar sem umsjónarkennari í Háaleitisskóla á Ásbrú. Sævar segist vera mjög spenntur fyrir komandi tímum og hefur mikinn áhuga á því að gera góðan bæ betri.

Listinn í heild sinni:

1. Helga Dís Jakobsdóttir, viðskiptafræðingur og mastersnemi í þjónustustjórnun.
2. Sævar Þór Birgisson, hagfræðinemi.
3. Sigríður Etna Marinósdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur.
4. Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, sagnfræðingur.
5. Lilja Ósk Sigmarsdóttir, tækniteiknari.
6. Ingi Steinn Ingvarsson, framhaldsskólanemi.
7. Inga Fanney Rúnarsdóttir, stuðningsfulltrúi.
8. Viktor Bergmann Brynjarsson, námsmaður.
9. Alexandra Marý Hauksdóttir, leiðbeinandi við leikskólann Laut og nemi í leikskólakennarafræði.
10. Kolbrún Dögg Ólafsdóttir, framhaldsskólanemi.
11. Dagbjört Arnþórsdóttir, framhaldsskólanemi.
12. Rósey Kristjánsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur og umsjónarkennari.
13. Milos Jugovic, knattspyrnuþjálfari.
14. Kári Hartmannsson, eldri borgari.