Róbert Trausti ráðinn forstjóri Keflavíkurverktaka
Róbert Trausti Árnason, fyrrverandi sendiherra og forsetaritari hefur verið ráðinn forstjóri Keflavíkurverktaka hf. Róbert var valinn úr hópi átján umsækjenda um starf forstjóra Keflavíkurverktaka hf. Hann starfar nú sem forsetaritari en hefur unnið mikið fyrir utanríkisþjónustuna og verið sendiherra.Róbert er stjórnmálafræðingur. Hann tekur við starfinu fljótlega en samningur hans er frá 1. apríl. Eins og greint hefur verið frá átti sér stað stór sameining hjá Keflavíkurverktökum á síðasta ári en þá voru fjögur aðildafélög þeirra sameinuð og Steindór Guðmundsson ráðinn nýr forstjóri. Hann hafði aðeins starfað í rúmt hálft ár þegar hann lést í febrúarmánuði.