Rjúpnaveiðin að hefjast
	Á föstudaginn hefst rjúpnaveiðitímabilið. Það stendur í 12 daga þar sem veiða má þrjá daga í senn frá föstudegi til sunnudags, fjórar helgar í röð. Síðasti veiðidagur er 16. nóvember. Ekki er víst að  veðrið verði veiðimönnum hliðhollt alla dagana og mikilvægt að huga vel að því við undirbúning, segir í fréttaskeyti frá VÍS.
	
	Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurvaktinni segir að um helgina megi vænta hæglætis vetrarveðurs víðast hvar á föstudag, hægum vindi og smáéljum hér og þar. „Á laugardag hvessir hins vegar af austri og þá má reikna með snjókomu og skafrenningi til fjalla, en slyddu á láglendi. Einkum um sunnanvert landið. Norðan- og norðaustanlands er útlit fyrir heldur skárra veður.  Á sunnudag dregur svo enn frekar til tíðinda og talsverðar líkur þá á norðankasti á landinu samfara djúpri lægð fyrir austan land.“   
	
	Það er árviss viðburður að björgunarsveitir séu ræstar út til að aðstoða rjúpnaskyttur í vanda. Veiðimönnum ber skylda til að gera sitt ýtrasta til að fyrirbyggja slíkt. Með því að búa sig vel má bæði koma í veg fyrir slys og að villast.
	
	Mikilvægt er að veiðimenn búi sig vel, kynni sér í þaula færð og veður fyrir brottför og taki full mark á viðvörunum.
	
	Skoði gasspá og mælingar á loftgæðum. Ef  gasmengun er á svæðinu getur þurft að endurskoða áætlanir og/eða hafa með sér viðeigandi búnað. Rakur klútur fyrir vitum getur hjálpað. Hafa þarf í huga að brennisteinsmengun getur verið missterk innan hvers svæðis. Til að mynda getur mengunin safnast fyrir í lautum og dölum. Þeir sem eru viðkvæmir í öndunarfærum þurfa sérstaklega að hafa varann á og ef tekin eru lyf við því ættu þau að vera meðferðis.
	
	Gera ferðaáætlun og skilja hana eftir hjá vandamönnum og á safetravel.is. Þar þarf að koma fram hvert á að fara, hverjir eru með í för, með hvaða búnað og hvenær áætlað er að koma til baka.
	
	Klæðast fatnaði í nokkrum lögum og það ysta vel vind og vatnshelt og í áberandi lit.
	
	Vera í vatnsheldum skóm með grófum sóla.
	
	Hafa áttavita, kort og fjarskiptatæki með í för. Gæta þess að allar rafhlöður séu vel hlaðnar og vera með 112 snjallsímaforritið í símanum.
	
	Vera á vel útbúnum bíl, á góðum vetrardekkjum og hreinsa þau með tjöruhreinsi áður en lagt er af stað.
	
	Hafa orkuríkt nesti og nægan  vökva með í för og gott er að hafa hluta vökvans heitan.
	
	Ekki vera ein á ferð og gæta að öðrum veiðimönnum .
	
	Aldrei geyma byssuna hlaðna í bílnum og hafa öryggið á á göngu.
	
	Spenna ávallt bílbeltið og gæta þess að festa niður farangur.


 
	
					 
	
					


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				