Rjúpa í heimsókn í Leirunni
Rjúpa í vetrarbúningi kíkti í Leiruna í morgun til að skoða aðstæður. Framkvæmdastjóri golfklúbbsins, Gunnar Þór Jóhannsson, hitti hana þar sem hún var að skoða bílinn hans en óvíst er hvort hún gangi í klúbbinn að sögn Gunnars.
Ekki hefur snjóað núna í langan tíma og hafa golfarar spilað mikið golf undanfarna daga. Því má segja að rjúpan sé það eina sem er hvítt í Leirunni þessa dagana.
Mynd: Gunnar Þór Jóhannsson