Ritstjórnarpistill: Viljum við sparisjóð?
Það er erfitt að skrifa eða tala Sparisjóðnum til varnar þessa dagana í ljósi ömurlegra frétta sem RÚV hefur sagt frá núna nokkrum sinnum. Eða hvað?
Ef við viljum hafa sparisjóð áfram á Suðurnesjum þá er ljóst að Suðurnesjamenn verða að standa saman um framtíð hans. Ef við ætlum að tryggja það verðum við að hætta að horfa í baksýnisspegilinn og horfa fram á við. Þetta er erfitt fyrir marga sem eru sárir og svekktir eftir að hafa tapað fé við gjaldþrot Sparisjóðsins í Keflavík. Horfa upp á þá ömurlegu staðreynd og horfa á sama tíma á fréttir dag eftir dag um klúður í rekstri gamla sparisjóðsins. Sá sem þetta ritar var í hópi þeirra sem átti stofnfé í Sparisjóðnum sem nú er glatað. Og er líka sár og svekktur. Við skulum samt ekki gleyma því að sýna skal aðgát í nærveru sálar þegar rætt er um stjórnendur gamla sjóðsins. Þeir vissulega gerðu mörg mistök og hér er ekki verið að draga fjöður yfir það. Rannsókn stendur yfir á gamla Sparisjóðnum og mun leiða sannleikann í ljós í þeim efnum. Við skulum þó ekki gleyma því að margir nutu þess á ýmsan hátt þegar vel gekk á góðærisárum SpKef.
Þegar gamli Sparisjóðurinn fór yfir um voru margir sem töluðu um að endurnýja þyrfti í stjórnendateymi. Það var gert. Nýr sparisjóðsstjóri og nýtt fólk stendur nú að mestu leyti í brúnni. Ef við viljum að nýr sparisjóður verði öflugur sjóður Suðurnesjamanna eins og hann hafði verið í eina öld áður en ósköpin dundu yfir, þá verðum við að standa saman og styðja við þá baráttu. Eitt helsta markmið í rekstri sparisjóðsins, eitt af gömlu gildunum, fyrir utan að veita góða bankaþjónustu, – er að vera samofinn samfélaginu í blíðu og stríðu. Styrkja íþróttir og menningu og veita einstaklingum og fyrirtækjum fjárhagslega fyrirgreiðslu eins og hægt er. Það vita allir sem til Sparisjóðsins hafa leitað að þar eru önnur viðbrögð við styrkbeiðnum en hjá viðskiptabönkunum. Þar gilda önnur viðskiptaleg gildi. Þannig hefur það verið. Samkeppni er til góðs og nýr sparisjóður þarf að geta keppt við viðskiptabankana. Það má ekki gleyma því að fólk tapaði peningum á falli þeirra líka. Fall þeirra var upphaf hrunsins á Íslandi.
Ef við viljum að nýr sparisjóður fái tækifæri á að lifa sem lang flestir eru líklega sammála um, skulum við sýna það í verki og leggja til hliðar það sem liðið er og byggja saman sterkan sjóð sem getur þjónað fólki og fyrirtækjum á svæðinu.