Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Risaþyrlur flytja brú milli heimsálfa út á Reykjanes
Fimmtudagur 20. júní 2002 kl. 15:57

Risaþyrlur flytja brú milli heimsálfa út á Reykjanes

Fyrir ofan Stóru-Sandvík á Reykjanesi verður reist tignarleg brú í sumar þar sem fólki gefst tækifæri á því að ganga á milli heimsálfa frá jarðfræðilegu sjónarmiði, hvorki meira né minna. Brúnni verður komið fyrir yfir gjá sem myndast hefur vegna hreyfingar Evrópu- og Ameríkujarðflekanna sem rekast saman og þrýstast í sundur vegna jarðgosa neðan jarðar. Risastórar Chinook-þyrlur bandaríska hersins munu flytja brúnna út á Reykjanes frá byggingarstað á Keflavíkurflugvelli. Þyrlurnar koma til landsins um helgina með flutningaskipi Atlantsskipa. Skipaafgreiðsla Suðurnesja mun annast uppskipun á þyrlunum.Flekaskilin ganga í gegnum Ísland, frá Reykjanesi og norður fyrir land, og eru þau sýnileg víða. Hugmyndin um gerð slíkrar brúar vaknaði fyrir um 8 árum og var það Jóhann D. Jónsson, ferðamálafulltrúi Reykjaness, sem átti hana. Hugmyndin hefur því verið lengi í gangi en ekki komist í framkvæmd fyrr en nú.
Brúin var smíðuð af Íslenskum Aðalverktökum sem eru aðal stuðningsaðili verkefnisins og er hún 18m löng og situr á gjánni þar sem hún er um 6m há. Fólki gefst kostur á að fara yfir brúna hvenær sem er, því að kostnaðarlausu, og verða bílastæði skammt frá henni þar sem fólk getur lagt bílum sínum á meðan það gengur milli heimsálfa. Ætlunin er að brúin verði sjálfbær því þeir sem svo ganga yfir brúna og ná þeim merka áfanga að ganga frá Evrópu til Ameríku eiga þess kost að fá viðurkenningu þess efnis að hafa gengið yfir flekana. Ekki væri það ónýtt að eiga slíkt skírteini til sönnunar þess að hafa gengið milli heimsálfa en markaðs- og atvinnumálastofnun Reykjanesbæjar sér um að úthluta slíkum viðurkenningum gegn vægu gjaldi.
Brúin verður vígð með pompi og pragt 5. júlí nk. og munu fulltrúar ríkisstjórnar, forsætis-, samgöngu- og utanríkisráðherra verða við athöfnina og vígja brúna.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024