Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Fréttir

Rís 32 herbergja hótel á Garðskaga?
Á myndinni hér að ofan er umrædd lóð sýnd og merkt sem „hótel“. Tekið er fram að útlínur lóðarinnar á myndinni eru ekki nákvæmar.
Miðvikudagur 24. september 2014 kl. 14:43

Rís 32 herbergja hótel á Garðskaga?

– sveitarfélagið getur ekki úthlutað lóðinni að svo stöddu

Sótt hefur verið um lóð undir hótel á Garðskaga til skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Garðs. Óskað er eftir 6400 fermetra lóð á svæði ofan Skagabrautar. Í tillögu til aðalskipulags er svæðið skilgreint undir hótel.

Skipulags- og bygginganefnd tók málið til afgreiðslu á síðasta fundi sínum en segist ekki geta úthlutað lóð á þessu svæði að svo stöddu. Nefndin leggur til við sveitarfélagið að svæðið verði deiliskipulagt.

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta eru hugmyndir uppi um að byggja 32 herbergja hótel á lóðinni. Hótelið yrði byggt í tveimur áföngum, 16 herbergi í hvorum áfanga.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25