Fréttir

Rio Tinto styrkir Rauða krossinn um 208 milljónir vegna jarðhræringa við Grindavík
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins og Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur.
Fimmtudagur 18. apríl 2024 kl. 14:43

Rio Tinto styrkir Rauða krossinn um 208 milljónir vegna jarðhræringa við Grindavík

Rio Tinto hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi styrk að upphæð 208 milljónir króna, eða jafnvirði 1,5 milljónum dollara, til stuðnings samfélagsins sem hefur orðið fyrir áhrifum jarðskjálfta og eldgosa í og við Grindavík. Um er að ræða hæsta styrk sem fyrirtæki hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi til verkefna innanlands. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Styrkurinn kemur úr Hamfarasjóði Rio Tinto en sjóðnum er sérstaklega ætlað að styðja við samfélög á starfssvæðum fyrirtækisins sem hafa orðið fyrir barðinu á hvers kyns hamförum. Rio Tinto á Íslandi, sem rekur álverið í Straumsvík, hefur síðustu mánuði unnið að því að greiða fyrir styrkveitingunni vegna jarðhræringanna á Reykjanesi og áhrifa þeirra á samfélagið í Grindavík og víðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á næstu vikum verður gerð frekari grein fyrir hvernig styrkurinn verður nýttur en áhersla verður lögð á að styrkja samfélagið sem hefur orðið fyrir mestum áhrifum af þessum náttúruhamförum. Markmiðið er að bæta viðnámsþrótt  þeirra sem búa á svæðinu og verður verkefnið unnið í nánu samstarfi við þá sem eiga mestra hagsmuna að gæta. 

Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins: „Rauða krossinum er það mikil ánægja að fá tækifæri til að koma þessum veglega styrk í mikilvægan farveg. Styrkveiting af þessu tagi er án fordæma fyrir verkefni á Íslandi, dæmi um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og hvað það getur skipt miklu máli fyrir samfélagið. Rauði krossinn og Grindavíkurbær hafa staðið þétt saman i gegnum þessa erfiðu tíma  og munu halda því áfram. Ýmislegt bendir til þess að eldvirkni muni áfram hafa mótandi áhrif á líf fólks á Reykjanesskaganum. Íbúar þurfa að læra að lifa með og sættast við þennan nýja veruleika. Með framlaginu er hægt að styðja betur við samfélagið og efla viðnámsþrótt.” 

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur: „Við Grindvíkingar þökkum Rio Tinto kærlega fyrir þetta frábæra framtak og þennan veglega styrk. Starfsfólkið í Straumsvík sýnir okkur mikinn hlýhug og stuðning með því að hugsa til okkar og vinna að því að fá styrk af þessu tagi okkur til handa. Við Grindvíkingar erum að máta okkur við þann veruleika sem blasir nú við okkur og vinna úr því mikla áfalli sem á okkur hefur dunið. Eins og við þekkjum öll stjórnum við ekki gangi náttúruaflanna en fjárhæð af þessu tagi hjálpar okkur að takast á við afleiðingar þeirra og þau brýnu málefni sem að okkar samfélagi snúa um þessar mundir.“  

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi: „Álverið í Straumsvík hefur verið mikilvægur þátttakandi í íslensku samfélagi í 55 ár. Við höfum mikla samkennd með þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum jarðhræringanna á Reykjanesi síðustu misseri. Af þeim sökum settum við af stað styrkumsókn í Hamfarasjóð Rio Tinto. Framlag úr sjóðnum endurspeglar kosti þess að vera hluti af samsteypu Rio Tinto. Hluti af starfsfólki okkar í Straumsvík eru Grindvíkingar og enn fleiri búa á Reykjanesi. Áhrifin sem eldgos og jarðhræringar hafa haft á samfélagið í Grindavík og fleiri svæði á Reykjanesi eru mjög mikil. Við erum stolt og ánægð að geta stutt við samfélag Grindvíkinga og lagt okkar lóð á vogarskálarnar í þeim flóknu og krefjandi verkefnum sem blasa við.”