Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ríkistjórnin samþykkir 300 milljónir króna í menntanet á Suðurnesjum
Ákveðið hefur verið að styrkja starfsemi Keilis á Ásbrú samhliða því að koma á fót öflugu mentaneti.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 30. september 2020 kl. 12:02

Ríkistjórnin samþykkir 300 milljónir króna í menntanet á Suðurnesjum

„Erum með augun á Suðurnesjum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnuleitendur. Fyrirhugað er að ráðstafa allt að 300 millj. kr. til kaupa á þjónustu hjá menntanetinu sem hluti af átakinu Nám er tækifæri. Þá hefur verið ákveðið að styrkja þær námsleiðir sem í boði eru hjá Keili gegn því að sveitarfélögin á Suðurnesjum komi jafnframt inn með fjármuni á móti.

Stjórnvöld hafa að undanförnu átt samtöl við forsvarsmenn sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, menntastofnanir og atvinnurekendur á svæðinu með það að markmiði að koma fram með aðgerðir sem taki mið af stöðu vinnumarkaðarins en atvinnuleysi á svæðinu fór hæst í kringum 25% eftir að faraldurinn hófst en var í september í kringum 17%. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Við erum með augun á Suðurnesjum núna. Það er engin spurning. Við áttum mjög góðan fund með bæjarstjórum sveitarfélaganna nýlega þar sem farið var yfir ýmsa möguleika og verkefni og það má segja að þetta menntaúrræði sé það fyrsta sem kemur úr því. Einnig að styrkja rekstur Keilis sérstaklega en þar koma sveitarfélögin einnig með í það. Við vitum hvernig ástandið er á svæðinu í atvinnumálum og erum að skoða fleiri úrræði í þeim efnum, m.a. hugmyndir sem hafa komið frá heimamönnum. Þar má nefna hafnamál, samgöngumál, frumkvölastarfsemi og fleira,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra í samtali við Víkurfréttir.

Katrín segir að það sé einnig horft til þess hvernig hægt sé að auka fjárfestingu einkaaðila samhliða því að tryggja félagslegs og menntaúræði, nýsköpun, ný tækifæri og hraða verkefnum. „Við erum líka að hvetja til einkafjárfestingar í grænni umbreytingu með möguleika á ívilnunum í slíkum verkefnum, þar sem horft er til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þar eru mörg ónýtt tækifæri, til dæmis í grænmetisframleiðslu. Við erum bara að framleiða lítið af því sem við borðum,“ sagði forsætisráðherra.

Menntamálaráðherra mun stýra þessu nýja menntaneti í samvinnu við heimamenn en forsætisráðherra sagði að svona verkefni hafi verið gert víðar með góðum árangri.

Katín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.