Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Ríkisstjórnin vill ræða við Magma um lengd nýtingaréttar
Þriðjudagur 18. maí 2010 kl. 15:15

Ríkisstjórnin vill ræða við Magma um lengd nýtingaréttar


Ríkisstjórn Íslands vill taka upp viðræður við Magma Energy þess efnis að nýtingaréttur  HS Orku á orkuauðlindum á Reykjanesi verði takmarkaður í 40-45 ár í stað 65 ára. Þá vill ríkisstjórnin að íslenska ríkið fái forkaupsrétt í a.m.k. 20 ár ef Magma hyggst selja HS Orku aftur. Þetta kom fram á ríkisstjórnarfundi í morgun

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Samþykkt ríkisstjórnarinnar frá í morgun er eftirfarandi:

Ríkisstjórn Íslands áréttar vilja sinn til að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum. Einn af hornsteinum umhverfisstefnu ríkisstjórnarinnar er að þær séu nýttar með sjálfbærum hætti.

Til að framfylgja þessum markmiðum ríkisstjórnarinnar hyggst hún hraða lagasetningu m.a. í  samræmi við nýútkomna skýrslu á vegum sérfræðinefndar um fyrirkomulag leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins. Megin niðurstaða nefndarinnar er að nýtingarrétti á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar verði ekki ráðstafað nema með tímabundnum hætti og almennt eigi að miða við styttri leyfistíma en hámarkstíma samkvæmt núgildandi lögum. Það er einnig niðurstaða nefndarinnar, að undantekningarlaust eigi að taka gjald fyrir rétt til nýtingar þessara auðlinda. Þannig verði tryggt að renta af auðlindinni renni til eigenda hennar, þjóðarinnar sjálfrar.

Ríkisstjórnin mun einnig leggja áherslu á endurskoðun stjórnarskrárinnar til að tryggja enn frekar eign þjóðarinnar á auðlindum landsins. Slíkt ákvæði í stjórnarskrá er besta trygging þess, að auðlindir Íslands verði í eigu þjóðarinnar um ókomna tíð.

Loks vill ríkisstjórnin árétta, að ekki verður hróflað við eignarhaldi á orkufyrirtækjum sem eru á hendi ríkisins í tíð þessarar ríkisstjórnar.