Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ríkisstjórnin tefji ekki frekar verkefni sam skapað geta atvinnu
Mánudagur 12. október 2009 kl. 20:30

Ríkisstjórnin tefji ekki frekar verkefni sam skapað geta atvinnu

Húsfyllir var á borgarafundi um atvinnumál á Suðurnesjum sem haldinn var í dag undir yfirskriftinni Baráttan um atvinnu. Á fundinum var lögð fram ályktun þar sem þess er krafist að ríkisstjórnin tefji ekki frekar verkefni sam skapað geta atvinnu strax um áramót.

Ályktun fundarins:

Borgarafundur á Suðurnesjum, haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, mánudaginn 12. október, krefst þess að ríkisstjórnin standi með Suðurnesjamönnum í þeirri miklu atvinnuuppbyggingu sem nú gæti hafist á svæðinu um næstu áramót og haft jákvæð áhrif fyrir allt landið.


Ríkisstjórnin verður að taka af skarið um að verkefni verði ekki tafin frekar, sem fengið hafa eðlilegan undirbúning og hafa fylgt í öllum atriðum eðlilegum stjórnsýsluleiðum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Stærstu áformin í atvinnuuppbyggingu, s.s. álver, kísilver og gagnaver, krefjast orku sem þarf að flytja á milli staða. Þeim er teflt í tvísýnu með ákvörðun Umhverfisráðherra að tefja enn frekar vinnu við raforkulagnir um Suðurnes. Óljóst er hvort tafir á uppbyggingu vegna ákvörðunar ráðherrans þýða mánuði eða ár. Þá hefur ríkisstjórnin ekki svarað því hvort og með hvaða hætti hún hyggst styðja hafnargerð í Helguvík sem langt er komin. Þessi mál verður ríkisstjórnin strax að leysa.


Öllum töfum í atvinnuuppbyggingu er stefnt gegn tekjulágu fólki og atvinnulausum, sem beðið hefur árum saman eftir nýjum atvinnutækifærum. Yfir 1600 manns eru nú atvinnulausir á Suðurnesjum.


Borgarafundurinn minnir á að brotthvarf bandaríska varnarliðsins frá Suðurnesjum, fyrir aðeins þremur árum, hratt af stað stærstu hópuppsögnum í sögu þjóðarinnar á undan núverandi kreppu. 900 störf töpuðust.


Þau fjölbreyttu atvinnutækifæri sem unnin hafa verið á undanförnum árum í samstarfi sveitarfélaga, launþegahreyfingar og atvinnufyrirtækja á svæðinu, eru nú tilbúin til framkvæmda og geta skapað þúsundum manna atvinnu frá áramótum. Napur veruleiki atvinnuleysis og lágra launa gæti því breyst fyrir mjög marga strax um næstu áramót með fyrirhuguðum stórverkefnum á sviði álvinnslu í Helguvík. Laun í álveri eru umtalsvert hærri en þau meðallaun sem íbúar búa nú við.


Í framhaldi af því bíða fjölmörg önnur vel launuð og áhugaverð störf m.a. tengd rafrænu gagnaveri, heilsuuppbyggingu, tónlistarsköpun, kolefnisnýtingu, flugþjónustu og áframhaldandi styrkingu menntastoða hjá Keili.


Ef ráðherrar ríkisstjórnarinnar vinna með Suðurnesjamönnum, geta þúsundir manna fengið að nýju atvinnu og aðrir notið betur launaðra starfa strax uppúr næstu áramótum.