Bygg
Bygg

Fréttir

Ríkisstjórnin styrkir Björgunarsveitina Þorbjörn um tíu milljónir
Björgunarsveitin Þorbjörn hefur haft í nógu að snúast undanfarin ár. Mynd úr einkasafni Björgunarsveitarinnar Þorbjörns
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 14. júlí 2023 kl. 13:46

Ríkisstjórnin styrkir Björgunarsveitina Þorbjörn um tíu milljónir

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra og dómsmálaráðherra um að styrkja Björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík um tíu milljónir króna. Fjárveitingin er veitt til að efla áframhaldandi starf björgunarsveitarinnar og í viðurkenningar- og virðingarskyni við starfsemina en Björgunarsveitin Þorbjörn hefur verið í lykilhlutverki undanfarin ár vegna viðvarandi eldsumbrota á svæðinu.

„Með þeim eldsumbrotum sem hafa átt sér stað á Reykjanesskaga á undanförnum árum, þar á meðal þeim sem hófust við Litla-Hrút í upphafi þessarar viku, hefur mikilvægi björgunarsveita landsins enn og aftur sannast. Mikið hefur mætt á sjálfboðaliðum björgunarsveitanna, þar með talið í Björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík, sem hafa fylgst með gangi mála á gossvæðinu, tryggt lokun svæða þegar við á og stýrt umferð vegfarenda. Mikill fjöldi sjálfboðaliða mannar vaktir á svæðinu hverju sinni, oft og tíðum við krefjandi aðstæður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þessi styrkur mun nýtast öllum þeim björgunarsveitarmönnum sem eru að störfum á svæðinu og koma hvaðanæva af landinu og eru þeim færðar þakkir fyrir sitt óeigingjarna starf,“ segir á síðu stjórnarráðs Íslands.