Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Ríkisstjórnin hlustaði á óskir Suðurnesjabæjar og fékk tónlist og bjór
Ráðherrar skoðuðu spenntir krabba í Þekkingarsetrinu.
Laugardagur 21. ágúst 2021 kl. 08:39

Ríkisstjórnin hlustaði á óskir Suðurnesjabæjar og fékk tónlist og bjór

Eftir fundi ríkisstjórnarinnar á Suðurnesjum í síðustu viku heimsóttu ráðherrar Suðurnesjabæ.  Fulltrúar Suðurnesjabæjar fóru á fund með fulltrúum sveitarstjórna og ríkisstjórnarinnar þar sem farið var yfir málefni sem snúa sérstaklega að Suðurnesjabæ og má þar m.a. nefna að leggja þarf stóraukna áherslu á heilbrigðisþjónstu í Suðurnesjabæ sem í dag er engin, dagdvöl og þá sértæk dagdvalarrými og sjóvarnir. Í heimsókn í Suðurnesjabæ fór Magnús Stefánsson, bæjarstjóri, sérstaklega yfir málefni sveitarfélagsins, uppbyggingu og helstu staðhætti. Í Suðurnesjabæ var stoppað á tveimur stöðum, í Þekkingarsetri Suðurnesja þar sem starfsmenn leiddu ráðherra í sannleikann um allt það merkilega starf sem þar er unnið er og að lokum var stoppað í Garðskagavita þar sem systkinin úr Klassart, Fríða Dís og Smári, fluttu vel valin og frumsamin lög. Þá stýrði Magnús bæjarstjóri, hópnum í fjöldasöng við lagið Traustur vinur og boðið var uppá bjórsmökkun frá Litla Brugghúsinu.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í heimsókninni í Suðurnesjabæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024