HSS
HSS

Fréttir

Ríkisstjórnarfundur á Suðurnesjum í brennidepli
Laugardagur 13. nóvember 2010 kl. 09:11

Ríkisstjórnarfundur á Suðurnesjum í brennidepli

Í fréttavikunni á vf.is var þetta helst:

8. nóvember:
Brotist inn um hábjartan dag

Þjófar brutust inn í íbúðarhús í Reykjanesbæ um miðjan dag í gær og létu greipar sópa. Þeir stálu sjónvörpum, hljómflutningstækjum, myndavélum, tölvum og fleiru, samkvæmt frétt á visir.is

Íbúarnir brugðu sér af bæ upp úr hádegi en þegar þeir komu heim undir kvöld kom í ljós hvað gerst hafði. Þetta er þriðja innbrotið á heimili í Reykjanesbæ um hábjartan dag á innan við viku tímabili.

Lögreglan á Suðurnesjum sendi fyrir helgi frá sér tilkynningu þar sem hún greindi frá því að fjöldi tilkynninga um innbrot og tilraunir til innbrots hefðu borist að undanförnu. Innbrotin hafi átt sér stað bæði að nóttu og degi á heimili, í fyrirtæki og bíla. Innbrot í heimahús hafi yfirleitt átt sér stað um miðjan dag, þegar fólk er ekki heima. Í flestum tilfellum hafi hálfopnir gluggar verið spenntir upp og þannig farið inn í húsin.

Lögregla vill kom því á framfæri við fólk að gæta að húsum sínum og öðrum eigum og tryggja það að óviðkomandi hafi ekki greiðan aðgang að eigum þess. Mikilvægt er að loka gluggum og læsa tryggilega.

Lögreglan hvetur fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir, ekki síst í íbúðahverfum, en upplýsingar frá nágrönnum geta skipt miklu máli. Það sem fólki kann að þykja lítilfjörlegt getur orðið til þess að upplýsa mál. Hér er m.a. átt við lýsingu á mönnum, bifreiðum eða bílnúmerum, en slíkar upplýsingar geta oft komið lögreglu á sporið. Rétt er að geta þess að innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða.

Hægt er að koma ábendingum/upplýsingum á framfæri við lögreglu í síma 420-1800 eða netfang lögreglunnar á Suðurnesjum, [email protected].

Bílakjarninn
Bílakjarninn



9. nóvember:

Framkvæmdir við einkasjúkrahús hefjast um áramót

Reiknað er með að framkvæmdir við gamla hersjúkrahúsið á Keflavíkurflugvelli hefjist um áramót og að það verði tilbúið um mitt ár. Stefnt er að því að fyrstu meðferðir á sjúkrahúsi Iceland Healthcare hefjist í ágúst á næsta ári, samkvæmt því sem Morgunblaðið greinir frá.
Boðið verður upp á sérhæfðar meðferðir á sjúkrahúsinu en sjúklingarnir koma erlendis frá. Talið er að starfsemin skapi allt að 300 störf.

Ríkisstjórnarfundur í Reykjanesbæ afgreiddi fjölda mála sem nýtast Suðurnesjunum sérstaklega á fundi sínum í Víkingaheimum í Reykjanesbæ í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórnin heldur fund hér á Suðurnesjum. Hér er myndskeið með blaðamannafundinum en á honum voru ráðherrar í ríkisstjórninni og bæjarstjórarnir á Suðurnesjum.




9. nóvember:

VefTV: Blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar í Reykjanesbæ

Ríkisstjórnin hélt reglulegan fund sinn í morgun í Reykjanesbæ og er það í fyrsta sinn sem ríkisstjórn Íslands fundar á Suðurnesjum. Fyrir fundinn átti ríkisstjórnin fund með bæjar- og sveitarstjórum allra sveitarfélagana á Suðurnesjum þar sem farið var yfir stöðu mála á svæðinu, ekki síst atvinnumálin og lausnir á því mikla atvinnuleysi sem þar ríkir.

Á ríkisstjórnarfundinum voru samþykkt ýmis mál sem geta haft góð áhrif á stöðu mála á Suðurnesjum og jafnframt var samþykkt sú tillaga fulltrúa sveitarfélaganna að setja á stofn samráðsvettvang ríkisstjórnarinnar og sveitarfélaga á Suðurnesjum til að vinna að framgangi málanna og fjölmargra annarra sem hafa verið til skoðunar að undanförnu. Ríkisstjórnin hefur leitað eftir hugmyndum að aðgerðum frá öllum ráðuneytum ásamt því sem farið hefur verið yfir þær hugmyndir sem komu út úr vinnu að Sóknaráætlun 20/20 fyrir Suðurnes.

Sjá nánar hér



10. nóvember 2010

Leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á þurrkuðum fiskafurðum

Haustak hf á Reykjanesi er stærsta fyrirtæki landsins sem sérhæfir sig í vinnslu á þurrkuðum fiskafurðum. Þykir fyrirtækið leiðandi á þessu sviði hér á landi, bæði hvað varðar tækni og gæði. Haustak er í sameiginlegri eigu tveggja grindvískra sjávarútvegsfyrirtækja, Vísis hf og Þorbjörns hf. Hjá fyrirtækinu á Reykjanesi starfa 25 manns í fullu starfi en auk þess rekur fyrirtækið vinnslu á Egilsstöðum sem keypt var fyrir þremur árum. Á Reykjanesi er unnið árlega úr 8-12 þúsund tonnum af hráefni
Mikil framþróun hefur orðið í þessari vinnslu og kemur verulega á óvart það vinnuumhverfi sem blasir við þegar komið er inn í bækistöðvar fyrirtækisins á Reykjanesi.

VF heimsótti Haustak í vikunni og var nánar greint frá því í Víkurfréttum.




11. nóvember:

Ný-Fiskur færir félagsþjónustunni rausnarlegar gjafir

Hjónin Birgir Kristinsson og María Björnsdóttir, eigendur Ný-Fisks í Sandgerði, færðu félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga rausnarlegar gjafir í dag
gær sem nýtast munu fólki á starfssvæði félagsþjónustunnar.  Um er að ræða 150 kg af fiski frá Ný-Fiski og 500.000 króna fjárframlag frá fyrirtækinu og starfsfólki þess. Í dag vinna um 100 manns hjá fyrirtækinu.

Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri og Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir félgasmálastjóri Sandgerðis, Garðs og Voga tóku við styrknum.  Sigrún sagði sýnt að fyrirtækið og starfsmenn þess létu sér annt um fólkið á sínu svæði. Þá sagði Sigrún ennfremur: „Ný-fiskur er fyrirtæki sem sýnir samfélagslega ábyrgð bæði gagnavart fólkinu sem býr hér og líka gagnvart náttúrunni, en Ný-Fiskur ehf. byggir afkomu sína á sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins. Fyrirtækið hefur sett sér það markmið að haga nýtingu auðlindanna þannig að það tryggi hámarkafrakstur til frambúðar, og lítur á það sem skyldu  hverrar kynslóðar að skila afkomendum sínum lífvænlegu umhverfi með verndun á lífríki og vistkerfi hafsins."

Þess má geta að Ný-fiskur fékk nýlega umhverfisvottun samtakanna Friend of the Sea. Hún staðfestir að framleiðslan uppfylli ströngustu kröfur um sjálfbærni í veiðum.

www.245.is greinir frá.


11. nóvember:
Fasteign leyst upp?

Öllum starfsmönnum Eignarhaldsfélagsins Fasteignar var sagt upp störfum í gær, samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins. Verið er stokka reksturinn upp og er ein hugmyndin sú að leysa félagið upp og helstu eigendurnir taki eignirnar yfir, samkvæmt því sem fram kemur í frétt Ríksútvarpsins. Stærstu eigendurnir eru Íslandsbanki og Reykjanesbær en tíu önnur sveitarfélög eiga í félaginu.

Stofnun Fasteignar var umdeild á sínum tíma og mikil átök hafa verið í bæjarpólitíkinni í Reykjanesbæ æ síðan vegna þátttöku bæjarins í félaginu. Reksturinn hefur verið þungur eftir Hrun. Kvarnast hefur úr eigendahópnum t.a.m. með úrsögn Fljótsdalshéraðs og Garðabæjar.


11. nóvember:
Reykjanesskagi skelfur

Jarðskjálfti upp á 2,8 á Richter varð um kl. 1:45 í nótt 5 km ANA af Keili. Varð skjálftans vart á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skjálftahrina hefur undanfarna daga gengið yfir Krýsuvíkur – Trölladyngjusvæðið og hefur mesta virknin verið við suðurenda Kleifarvatns. Stærstu skjálftarnir þar voru um tveir á Richter. Einn þeirra náði 2,3 á Richter.
Á meðfylgjandi korti Veðurstofunnar sést hvar skjálftavirknin er.


11. nóvember:

Innanlandsflugið á leið til Keflavíkur?

Sú niðurstaða að ný samgöngumiðstöð hefur verið blásin af í Reykjavík þýðir að innanlandsflugið fer til Keflavíkur. Þetta er álit Kristjáns L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra.

Sameiginleg ákvörðun ráðamanna Reykjavíkurborgar og samgönguráðherra í gær um að slá af samgöngumiðstöð við Loftleiðahótelið leiddi til viðbragða á Alþingi. Þess var krafist á Alþingi í dag að smíði nýs Landspítala yrði frestað meðan framtíð Reykjavíkurflugvallar væri óljós. Þá var spurt hvort borgin stefndi að algjörum aðskilnaði við landsbyggðina.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði augljóst að meðan framtíð flugvallarins í Reykjavík væri óljós yrði að slá á frest öllum framkvæmdum við Landspítala háskólasjúkrahús.

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði að forsvarsmenn borgarinnar þyrftu nú að ákveða hvort þeir ætluðu að stjórna borg sem ætlaði að vera bara höfuðborg fyrir þá sjálfa en ekki alla landsmenn.

„Erum við hugsanlega að tala hérna um algjöran aðskilnað milli borgar og landsbyggðar,“ spurði Höskuldur, en frá þessu er greint á Vísir.is.



12. nóvember:
Í ofsaakstri á leið í flug

Erlendur ferðamaður á bílaleigubíl var heldur betur að flýta sér á Reykjanesbrautinni í gær á leið upp í Leifsstöð. Lögreglan á Suðurnesjum mældi hann á 198 km hraða. Samkvæmt útskýringum ökufantsins átti hann bókað flug og var orðinn allt of seinn út á flugvöll. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum. Líklega verður honum stefnt fyrir dóm.



12. nóvember:

Heilbrigðisráðherra dragi til baka fyrirhugðan niðurskurð á HSS

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi í Starfsmannafélagi Suðurnesja í gær.

Stjórn STFS skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka fyrirhugaðan niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Staðreyndin er sú að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er einn af hornsteinum fyrir góðum búsetuskilyrðum á Suðurnesjum, en mjög hefur verið þrengt að henni undanfarin ár t.d. með lokun heilsugæslusela í Garði, Sandgerði og Vogum og ekki síst lokun skurðstofu í vor og þar með lamaðri fæðingardeild. Þetta hefur þýtt um 9% fækkun starfsmanna.

Ef hugmyndir heilbrigðisráðherra um 400 m.kr. niðurskurð ganga eftir þýðir það að sjúkrahúsþjónusta mun að mestu leyti leggjast af og í framhaldi verða uppsagnir á hátt í 80 starfsmönnum fyrst og fremst konur, og er það ekki viðunandi á svæði þar sem mesta atvinnuleysi er fyrir á landinu.

Síðustu tveir heilbrigðisráðherrar hafa ekki viljað ljá máls á því að fá betri nýtingu á skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja m.a. með útleigu. Núverandi heilbrigðisráðherra mun vera jákvæðari til þeirra mála og hefur framkvæmdastjórn HSS fullan vilja til að standa að slíku verkefni.

Stjórn STFS fagnar því að nú hyllir undir að framkvæmdir við gamla sjúkrahúsið að Ásbrú hefjist innan skamms og að fyrstu meðferðir geti hafist þar næsta sumar.
Á sjúkrahúsinu verður útlendingum boðið upp á sérhæfðar meðferðir og að sögn forsvarsmanna þess má búast við því að þar skapist hátt í þrjú hundruð störf, flest úr heilbrigðisgeiranum.

Lítur STFS á þessa starfssemi fyrst og fremst sem viðbót á störfum fyrir heilbrigðisstarfsmenn á Suðurnesjum og þá er vildu starfa hér.

Þarna er tendraður vonarneisti fyrir þá fjölmörgu starfsmenn heilbrigðisstofnana sem því miður mega búast við fjöldauppsögnum gangi hugmyndir ríkisstjórnarinnar eftir.