Ríkið vill losna við hlutinn í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að sveitarfélagið muni ekki kaupa aukinn hlut í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja.
Erindi frá stjórn Eignarhaldsfélags Suðurnesja hf. var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þar sem vísað er í erindi frá fjármála- og efnahagsráðuneyti fh. Ríkissjóðs Íslands þar sem fram kemur m.a. að ráðuneytið hafi hafið undirbúning þess að losa um hlut ríkisins í félaginu og í því sambandi er fjallað um leiðir sem séu færar varðandi þá aðgerð. Eignarhaldsfélagið óskar því eftir afstöðu hluthafa í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja hf. til erindisins.