Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Ríkið styður uppbyggingu innviða í Helguvík
  • Ríkið styður uppbyggingu innviða í Helguvík
    Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra í Helguvík í sumar.
Laugardagur 6. desember 2014 kl. 13:33

Ríkið styður uppbyggingu innviða í Helguvík

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær áform um uppbyggingu innviða á iðnaðarsvæðinu í Helguvík en þar er fyrirhuguð veruleg nýfjárfesting í atvinnustarfsemi. Greint er frá þessu á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hefur verið unnið að verkefnum þessu tengdu og má þar nefna fjárfestingarsamninga sem undirritaðir voru fyrr á árinu við félögin Thorsil og United Silicon um kísilmálmverksmiðjur. Verði þessi áform að veruleika munu þau hafa í för með sér jákvæð þjóðhagsleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif.

Forsenda þess að uppbygging á nýrri atvinnustarfsemi í Helguvík geti átt sér stað er að til staðar séu fullnægjandi innviðir, s.s. hafnaraðstaða og vegir. Í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014–2017 er tekið fram að ríkisstjórnin muni styðja við frekari uppbyggingu innviða á Helguvíkursvæðinu með sambærilegum hætti og gert var á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Þess má geta að fjárfesting PCC á Bakka er áætluð um 28 milljarðar króna, fjárfestingar Alcoa vegna álversins á Reyðarfirði voru um 140 milljarðar króna og samanlögð fjárfesting Thorsil og United Silicon í Helguvík er áætluð um 40 milljarðar króna.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hyggst leggja fram á komandi vorþingi frumvarp til laga um til að fjármagna uppbyggingu í Helguvík. Ákveðin efnisákvæði í frumvarpinu munu þurfa samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og mun ráðuneytið vinna að málinu í samstarfi við stofnunina, segir á vef ráðuneytisins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024