Bygg
Bygg

Fréttir

Ríkið stendur ekki við samninga
Þriðjudagur 23. september 2008 kl. 10:34

Ríkið stendur ekki við samninga



Sveitarfélögin í Vogum, Garði og Sandgerði bíða öll með tilbúna aðstöðu fyrir lögreglu Ekkert bólar hins vegar á mannskap til að manna stöðvarnar. Um þar síðustu áramót þegar dómsmálaráðherra kynnti nýskipan lögreglumála á Suðurnesjum var talað um stóraukna löggæslu á Suðurnesjum. Það virðist ekki hafa gengið eftir.



Boðaðar voru áherslubreytingar við sameiningu lögregluembætta við það tækifæri er Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, staðfesti formlega nýtt skipurit Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Þær voru einkum fólgnar í auknum sýnileika lögreglu, eflingu í rannsóknum mála, auknum málshraða og öflugu teymi lögreglumanna í fíkniefnamálum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Við sama tækifæri var undirritað samkomulag við sveitarfélögin á Suðurnesjum um fjölgun varðstofa á svæðinu. Það átti að hafa  í för með sér að varðstofur yrðu framvegis starfræktar í Sandgerði, Vogum, og Garði samhliða því að varðstofan í Grindavík yrði efld.



Í Vogum, Garði og Sandgerði bíða sveitarfélögin með tilbúna aðstöðu, sem ekki hefur enn verið nýtt. Í Vogum og Garði átti forvarnarfulltrúi að hafa ákveðna viðveru. Í Sandgerði er tilbúin varðstofa í húsakynnum slökkviliðsins.



„Það er því miður alltaf sama sagan með það sem Ríkið á að gera. Til dæmis hefur heilsugæslan hér verið lokuð í margar vikur. Við erum að berjast í því að fá einhverja þjónustu í þeim málaflokki. Við erum líka að berjast í því að fá almennilega löggæslu. Við erum einnig að berjast í því að ríkið borgi það sem það á að borga í málefnum fatlaðra. Það er bara eins og að tala við vegg,“ segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Vogum í samtali við VF. Hann segir allt bera að sama brunni í málefnum Suðurnesja gagnvart Ríkinu. Suðurnesin virðist þar vera afgangsstærð og benda megi á framlög til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem skýrt dæmi.



Á nýlegum fundi bæjarráðs Grindavíkur er því harðlega mótmælt að ekki hafi verið staðið við samninga og fyrirheit um aukna löggæslu í bæjarfélaginu. Þar vísað í samning sem gerður var árið 2000 milli bæjaryfirvalda og sýslumanns. Einnig er vísað til fyrirheita sem gefin voru við nýskipan lögreglu um þar síðustu áramót.



VF-mynd/elg: Nýskipan lögreglumála á Suðurnesjum var kynnt í byrjun árs 2007. Dómsmálaráðherra  kynnti aukna löggæslu á svæðinu og undirritaðir voru samningar við sveitarfélögin þar að lútandi.