HSS
HSS

Fréttir

Ríkið hefur ekki sett fram nein skilyrði - segir sparisjóðsstjóri
Föstudagur 8. maí 2009 kl. 17:57

Ríkið hefur ekki sett fram nein skilyrði - segir sparisjóðsstjóri

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Í neyðarlögunum er gert ráð fyrir því að ríkið geti komið að sparisjóðunum með allt að 20% framlagi af eigin fé miðað við árslok 2007 til að viðhalda því fjármálakerfi. Síðan þá hafa sparisjóðirnir í góðu samstarfi við stjórnvöld verið að vinna að aðkomu ríkisins og er sú vinna nú á lokastigi, og er reiknað með að henni ljúki um næstu mánaðarmót. Ekkert hefur enn komið fram um hverning og hvort um einhver skilyrði verði að ræða af hálfu stórnvalda eins og segir í frétt. Það er ljóst að ríkið verður stofnfjáraðili tímabundið í mörgum sparisjóðum og munu að sjálfsögðu sem slíkir hafa áhrif á stjórn þeirra ásamt öðrum stofnfjáraðilum, en það er eins ljóst að ríkið hefur ekki áhuga á að vera þar til langframa, því er hér um tímabundið ástand að ræða að mínu mati,“ segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri um frétt DV í dag.

Sparisjóðirnir átta hafa óskað eftir eiginfjárframlagi frá ríkinu. DV hefur eftir Hjördísi Vilhjálmsdóttur, ráðgjafa Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, að líklega verði það  veitt en með afar ströngum skilyrðum þó, meðal annars að ríkið eignist stóra hluti í sjóðunum. Samkvæmt þessum orðum Geirmundar stemma orð Hjördisar ekki við það sem fram hefur farið í viðræðum um þessi  mál að undanförnu. Geirmundur gagnrýndi ríkisvaldið harkalega á aðalfundi SpKef nýlega fyrir slælega frammistöðu í aðkomu sinni að því að styrkja sparisjóðina, sem það hafði lofað.

Mynd: Geirmundur í ræðustól á aðalfundi SpKef í næst síðustu viku.