Ríkið gæti jafnræðis á milli landshluta
Lögð fram samantekt og greining Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum á framlögum til Suðurnesja í fjárlagafrumvarpi ársins 2020 í bæjarráði Reykjanesbæjar í gær.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hvetur Alþingi Íslendinga til að gæta jafnræðis á milli landshluta þegar kemur að fjárveitingum til þeirra stofnana sem ríkið á og rekur.