Rignir í dag
Gengur í suðaustan og síðar austan 10-15 m/s fyrir hádegi við Faxaflóa með rigningu. Norðaustan 5-13 og skúrir á morgun. Hiti 8 til 14 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Gengur í suðaustan 10-15 m/s þegar líður á morguninn með rigningu. Austan 5-10 í kvöld og á morgun með skúrum. Hiti 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir eða rigning með köflum, en þurrt að mestu um landið NA-vert. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á NA-landi.
Á mánudag:
Suðvestan gola og skúrir, en bjart með köflum á A-helmingi landsins. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á A-landi.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir hæga breytilega átt. Þurrt á landinu og bjart á köflum. Hiti 10 til 18 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir austan- og suðaustanátt. Rigning á sunnan- og vestanverðu landinu, en bjartviðri NA-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA-lands.