Rigning og slydda í dag

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðaustan 10-18 m/s og rigning, hvassast við ströndina, en suðlægari síðdegis. Suðvestan 10-18 og skúrir eða slydduél undir kvöld, en dregur úr vindi í nótt. Suðvestan 3-8 á morgun og stöku él. Hiti 2 til 7 stig, en 0 til 4 stig á morgun.