Rigning og skúrir fram eftir morgni
Veðrið kl. 06 í morgun var suðvestlæg átt, 10-15 m/s suðvestanlands, en annars mun hægari. Skúrir eða rigning var á vestanverðu landinu, en léttskýjað víða austan til. Hiti var 1 til 6 stig á láglendi.Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring: Suðvestan 13-18 m/s og skúrir sunnan- og vestanlands, en hægari og skýjað með köflum um landið norðaustanvert. Dregur fljótlega úr vindi. Snýst í norðanátt síðdegis, fyrst vestantil. Víða 10-15 m/s og él í kvöld og nótt, en hægari og léttskýjað suðaustanlands. Norðvestlægari á morgun og dregur smám saman úr vindi og ofankomu. Kólnandi veður, frost 0 til 7 stig á morgun, en hiti í kringum frostmark við suðurströndina.
Veðurhorfur næsta sólarhring fyrir Faxaflóasvæðið: Suðvestan 13-18 m/s og rigning eða skúrir fram eftir morgni, en lægir síðan. Snýst í norðvestan 8-13 síðdegis. Hiti 1 til 6 stig.
Byggt á vef Veðurstofu Íslands.