Rigning með köflum
Veðurspá dagsins fyrir Faxaflóasvæðið gerir ráð norðanátt, 8-15 m/s og sums staðar hvössum hviðum við fjöll fram eftir nóttu. Rigning með köflum. Snýst í vestan 3-10 á morgun og skúrir síðdegis. Hiti 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Hægt vaxandi norðanátt, 8-13 með kvöldinu. Lítilsháttar væta með köflum. Hægari vestlæg átt á morgun og skúrir síðdegis. Hiti 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Suðaustlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 við S-ströndina síðdegis. Dálítil rigning með köflum S- og V-lands, en annars bjartviðri. Hiti víða 10 til 16 stig.
Á sunnudag:
Norðaustan 8-13 m/s og rigning eða súld A-til á landinu, en annars bjart með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast V-lands.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir nokkuð ákveðnar austlægar áttir með vætu, en úrkomulítið V-lands. Milt í veðri.