HSS
HSS

Fréttir

Rigning með köflum
Mánudagur 25. ágúst 2008 kl. 08:59

Rigning með köflum

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Norðaustan 5-13 m/s og rigning eða rigning með köflum. Hvassari norðanátt um tíma á annesjum vestast undir hádegi, en annars austlæg átt víða, 5-10. Úrkomulítið norðan- og austanlands síðdegis. Suðvestan 5-13 sunnantil í kvöld og á morgun, hvassast við ströndina, en hægari suðlæg átt norðan- og austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.


Faxaflói
Norðan og síðar norðvestan 5-10 m/s og rigning með köflum, en hvassari á annesjum. Vestlæg átt, 5-10 í nótt og á morgun. Hiti 7 til 12 stig.


Veðurhorfur á landinu næstu daga


Á miðvikudag:
Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum. Hiti 8 til 14 stig.


Á fimmtudag:
Gengur í austan 8-13 m/s með rigningu, fyrst sunnantil. Hiti breytist lítið.


Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir austan eða norðaustanátt með rigningu víða um land. Heldur kólnandi veður.